"Ræða málin" hvaða mál Einar?

Ef þú ætlar að ræða málefni Kvótakerfisins og áhrif þeirra á byggðirnar, þá er sú umræða þörf og fyrir löngu síðan. Ekki bara fyrirsláttur og rökleysa frá ykkar hendi sjálfstæðismanna, sem hafið haldið dauðahaldi í þetta vonlausa kerfi.  Umræða af ábyrgð fyrir byggðirnar og fólkið það er það sem þarf og ekki seinna en strax.  Ef þú ætlar að ræða tillögur Hafró þá er löngu  tímabært að gefa þeirri stofnun langt frí og góða starfslokasamninga. Ég bendi á góðan leiðara Morgunblaðsins í dag 2. júní.  Góð lesning fyrir þig Einar og þína samflokksmenn.
mbl.is Sjávarútvegsráðherra: Þurfum að ræða málin af yfirvegun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grétar Pétur Geirsson

Gaman að lesa þessi skrif þín og sjá hvað þú hefur sterka réttlætiskennd gagnvart því fólkinu sem býr í þessu plássum sem eru að blæða út vegna þeirra stefnu sem nú ríkir í sjávarútvegsmálum og á ekki að hreyfa við. Ég deili henni svo sannarlega með þér Ragnheiður. Guðjón Arnar taldi upp á Alþingi í fyrra kvöld 34 pláss sem eru rústir einar. Og eina sem menn hafa til málanna að leggja er óbreytt ástand.Þvílígt ábyrgðarleysi  

Grétar Pétur Geirsson, 2.6.2007 kl. 20:28

2 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Sumir sem heita ráðherrar í dag hefðu verið í gamla daga skallaðir skottulæknarenda vita þeir ekki hvað þeir gjöra( ráðherrarnir).

Með lögum skal land byggja og ólögum eyða. Takk fyrir Grétar Pétur réttlætiskenndin mín er mikil þegar órétti er beitt í sama hvaða formi sem er þá bregst ég við.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 2.6.2007 kl. 21:31

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Ragnheiður við erum ekki mörg,sem erum að skrifa um kvótaspillinguna.Á maður að trúa því að meðan sjávarbyggðum er að bæða út,sé fólki á þéttbýlissvæðunum alveg sama um framvindu þessa mála.Þeir  horfa aðgerðar - og ráðlausir á,eins og þeim komi þetta ástand ekkert við.Er þjéttbýlið búið að aðskilja sig frá dreifbýlinu,því komi ekki lengur við lífskilyrði og afkoma þeirra sem þar búa.Hvar  er sú kærleikskennd,sem áður fyrr sameinaði okkur sem eina heilsteypta þjóð.Það er margt sem bendir til,að ýms smærri byggalög og ýmsir lálaunahópar  séu að aðgreinast í þjóðfélaginu.Auðhyggjunni er að takst að mynda varanlegan stéttamismun af Bandarískri fyrirmynd.    

Kristján Pétursson, 2.6.2007 kl. 23:28

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Það sagði einn XD maður við mig um daginn:Hvaða vandamál á Flateyri ertu að tala um,nú maðurinn seldi bara bissnesinn og ég held að þessir útlendingar geti bara hundskast heim.góða Sjómannadag helgi

Ólafur Ragnarsson, 3.6.2007 kl. 01:44

5 Smámynd: Grétar Pétur Geirsson

Sennilega er það þetta frjálsa og sveiflukennda göngulag sem þar kemur sterkt inn.Var bara ekki búin að átta mig á þessu.Ég held ég fari að vera meira á röltinu niður í bæ og athuga hvort þetta virki enn

Grétar Pétur Geirsson, 3.6.2007 kl. 11:39

6 Smámynd: Grétar Pétur Geirsson

fyrirgefðu sent á villaust blogg

Grétar Pétur Geirsson, 3.6.2007 kl. 11:44

7 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Já Kristján við erum að verða 3 stéttir í þessu þjóðfélagi, hinir moldríku, hinir ríku og hinir sem að hafa varla til hnífs og skeiðar. Það verður sennilega engin breyting á þessu fyrr en útlendingarnir fara að taka hálaunastörfin frá þeim ríku, þá fer að hrikta í stoðunum.  En nú erum við að sjá afrakstur þessa kvótakerfis í hnotskurn þar sem friðunin skilar alltaf minna og minna og hvað segja kvótagreifarnir þá,(ég veit að þeim er mjög illa við þetta viðurnefni)lénsherrar nútímans, fara að öskra hávært. bíðum bara við.  Það þarf ekki marga daga til. Kærleikurinn og réttlætiskenndin er víst að verða úrelt, ætli við sem höfum  hugsjónir og réttlætiskennd séum ekki að verða síðustu Geirfuglarnir, það er bara græðgin sem ræður í dag. "Gerum hina ríku ríkari" nýja kjörorð Sjálfstæðisflokksins er að yfirgnæfa allt siðferði í þessu landi að mér sýnist.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 3.6.2007 kl. 13:02

8 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Ólafur XD maðurinn sér ekki út fyrir skóinn sinn frekar en aðrir sjálfstæðismenn, þeir hafa sennilega lent í einhverskonar heilaþvottavél  og  fengið syndaaflausn.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 3.6.2007 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ragnheiður Ólafsdóttir

Höfundur

Ragnheiður Ólafsdóttir
Ragnheiður Ólafsdóttir

 

Fædd á Bíldudal, alin upp í Stykkishólmi, bý á Akranesi.

Allt sem snýr að jafnrétti/ mannréttindum.

Sjávarútvegsmálum. Lífið er jú pólitík.

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Við Skorradalsvatn
  • Ragnheiður Ólafsdóttir, listakonan mín
  • Amma með Ragnheiði og Kristrúnu Söru og Pascal
  • S0lvi og afi Palli sem er að verða 90 ára 1. júní n.k.
  • Heiðrún Ýr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1389

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband