Af hverju þefa þeir ekki upp kvótasvindlara

Er ekki tímabært að þefa uppi kvótasvindlara og hegna þeim sem hafa stolið marg-miljörðum af þjóðinni.  Ég hef ekki á móti því að fólki sé refsað ef það gerist brotlegt við lög en það er löngu tímabært að Dómsmálaráðherra kanni allt kvótasvindlið af nógu er víst að taka þar smbr. "Kompásþátturinn" þar sem Fiskistofustjóri viðurkenndi svindlið en Sjávarútvegsráðherra,þóttist ekkert vita og ætti   að vera í felum, og skammast sín. 


mbl.is Ók undir áhrifum fíkniefna - lögregluhundur þefaði upp ólöglega vímugjafa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Bjarni minn! Þetta er sko ekki í lagi og meir en ekki í lagi.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið við völd sl. 16 ár og við höfum haft slík undur í stóli sjávarútvegsráðherra  sl. ár og ekki bætir um betur að Einar Kristinn er verðlaunaður fyrir tryggð sína við LÍÚ og peningaveldið að hann er bæði innsiglaður og innmúraður í þögn sína um kvótakerfið, það er heilagt fyrir honum og Greifunum .  Skildi Geir ekki vita af þessu? eða er hann enn í kossaflensi eins og sr. Hjálmar Jónsson kvað á dögunum

Rétt var að gulltryggja grunninn

Geir fann að björninn var unninn

Enn þurfti kossa

með þvílíkum blossa

og það svona beint á munninn.

Svo vaknar vonandi Geir einn daginn og sér að sjávarútvegsráðherrann  hefur algjörlega bruggðist.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 28.5.2007 kl. 22:55

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er alveg með eindæmum.  Og svo er þessi ráðherra að býsnast yfir öðrum.  Svei því bara.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.5.2007 kl. 21:33

3 Smámynd: Lýður Árnason

Sjávarútvegsráðherra ætti að beita sér fyrir því að lögsækja ekki þá sem koma fram og viðurkenna kvótasvindl og gildir þá einu hvort um brottkast sé að ræða, yfirfærslu fisktegunda, framhjávigtun eða flokkadrátt, engin lögsókn gæti ýtt við fólki og varpað ljósi á umfangið. 

Lýður Árnason, 31.5.2007 kl. 04:00

4 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Já ef Sjávarútvegsráðherra hefði það vit í kollinum að lögsækja ekki þá sem einhverra hluta vegna hafa neyðst til að taka þátt í svindlinu, þá kæmu málin mikið auðveldar upp á borðið og væri hægt að taka á vandanum En ég heyrði í Reyni Trausta í viðtali við Jóhann Hauksson í morgunn um kvótakerfið og þar sagði hann að innan þessa kerfis væri alltaf verið að tala um hagræðingu og hann kallaði þetta hagræðingu andskotans.  Ég er nokk sammála Reyni hagræðing fyrir hvern? byggðirnar, fólkið eða hvern?  "Hagræðing andskotans" skal það heita.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 31.5.2007 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ragnheiður Ólafsdóttir

Höfundur

Ragnheiður Ólafsdóttir
Ragnheiður Ólafsdóttir

 

Fædd á Bíldudal, alin upp í Stykkishólmi, bý á Akranesi.

Allt sem snýr að jafnrétti/ mannréttindum.

Sjávarútvegsmálum. Lífið er jú pólitík.

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Við Skorradalsvatn
  • Ragnheiður Ólafsdóttir, listakonan mín
  • Amma með Ragnheiði og Kristrúnu Söru og Pascal
  • S0lvi og afi Palli sem er að verða 90 ára 1. júní n.k.
  • Heiðrún Ýr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1389

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband