12.4.2009 | 17:08
Manni getur flökrað !!!
"Sjálfstæðisflokkurinn hefur heiðarleika að leiðarljósi"seigir Einar Kristinn Guðfinnsson á bloggsíðu sinni, og það hafi verið augljós mistök að taka við ofurstyrkjum FL Group og frá Landsbankanum, með því að endurgreiða þessa styrki og að framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins sagði af sér, og fyrrverandi formaður segist axla ábyrgð, þá hafi flokkurinn tekið á málum af myndarskap og heiðarleika.
Heldur veslings maðurinn að þeir geti fengið syndaaflausn á þessu bulli og heldur Einar Kristinn að fólk trúi þessu yfirklóri þeirra?
Manni bara flökrar og það á sjálfan Páskadag að maðurinn skuli setja þetta fyrir alþjóð að sjálfstæðismenn hafi heiðarleikan að leiðarljósi.
Ekki hefur mér fundist að Einar Kristinn hafi gert það með kosningaloforðum sínum undanfarnar kosningar, að hann hafi haft sannleikann og heiðarleikan að leiðarljósi.
Ég trúi því ekki að fólkið í landinu sjái ekki í gegnum þennan blekkingarleik þeirra. Kjósendur vita sínu viti.
Ætli heiðarleikinn felist í kvótakerfinu?
Byrjaði ekki spillingin þar?
Sjálfstæðisflokkurinn hefði sennilega aldrei upplýst þessi mál nema af því að FL Group fór á hausinn og bankahrunið varð.
Hvar er heiðarleikinn Einar Kristinn?
Augljós mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ragnheiður Ólafsdóttir
Bloggvinir
- agny
- malacai
- polli
- ormurormur
- asgerdurjona
- thjodarsalin
- bjarnihardar
- gattin
- eirikurbergmann
- gretarmar
- gretar-petur
- sarahice
- gudjonbergmann
- gudnym
- hallgrimurg
- helgatho
- hlynurh
- maple123
- mediumlight
- ieinarsson
- jakobk
- kreppan
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- kiddip
- lydurarnason
- martagudjonsdottir
- olafiaherborg
- solir
- businessreport
- ranka
- einherji
- siggith
- sigurjonth
- saethorhelgi
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stilltu þig,Ragnheiður,þú veist það að maður sem segir að sjálfstæðisflokkurinn hafi heiðarleika að leiðarljósi (eins og allir hafa heyrt) hlýtur að vera siðblindur og sjónlaus svo ekki sé meira sagt,(Einar K hlýtur að búa á eyðieyju langt langt út á hafi,??? Ef fólk trúi þessu hjá Einar K og það á páskadegi,já þá er einkvað að,???en Ragnheiður ég trúi nú ekki á að fólk kjósi Einar K.eftir þessa yfirlýsingu,eða kannski heldur Einar K að þjóðin séu hálvitar,???veit ekki,ég á ekki orð, en ég er með heiðalega lausn á hans málum,ef hann kemst ekki á þing,þá væri gott að fá hann í leikhús,ef ekki þá á hann alltaf greiða hjá Lofti,Loftur gæti reddað honum vinnu á Hval 8. Ragnheiður Gleðilega páska og njóttu.
Jóhannes Guðnason, 12.4.2009 kl. 18:07
Gleðilega Páska Jóhannes, já ég er stillt og ljúf að venju.
Ragnheiður Ólafsdóttir, 12.4.2009 kl. 18:17
Ég var djúpt snortinn
Finnur Bárðarson, 12.4.2009 kl. 18:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.